Back to results

Bifröst University

Viðbrögð íslenskra viðbragðsaðila við fjarskiptabilunum: Vitund, viðbragðsáætlanir og raunveruleg reynsla

Abstract

dc:description.abstract

Fjarskipti gegna lykilhlutverki í stjórnun og samhæfingu viðbragða þegar áföll dynja yfir. Truflanir eða bilanir í fjarskiptakerfum geta haft veruleg áhrif á getu viðbragðsaðila til að sinna störfum sínum, miðla upplýsingum og tryggja öryggi almennings. Tilgangur þessa verkefnis er að kanna vitund, viðbragðsáætlanir og raunverulega reynslu viðbragðsaðila þegar fjarskipti bregðast. Verkefnið byggir á viðtölum við fulltrúa helstu viðbragðsaðila landsins, umfjöllun í fjölmiðlum, skýrslum stjórnvalda og reynslu erlendra ríkja af bilunum í fjarskiptakerfum. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að þrátt fyrir að viðbragðskerfi almannavarna séu skýrt skipulögð, þá skortir formlegar viðbragðsáætlanir og æfingar vegna bilanna í fjarskiptum. Þá gerir skipulag almannavarna ekki ráð fyrir varaleiðum í viðbrögðum við áföllum. Þar að auki er ekki að finna áætlanir sem gera ráð fyrir því að fjarskiptakerfi sé óstarfrækt eða hafi orðið yfir skemmdum. Verkefnið dregur fram mikilvægi þess að efla vitund og þjálfun viðbragðsaðila um viðbrögð við fjarskiptabilunum. Auk þess þarf að skýra varaleiðir, ábyrgð og verkaskiptingu milli stofnanna. Lagt er til að viðbragðsáætlanir verði endurskoðaðar og að reglulegar æfingar vegna fjarskiptabilanna, verði hluti af starfsemi viðbragðsaðila. Þá er mikilvægt að horfa til framtíðar, það felur í sér að endurnýja búnað og innleiða nýja tækni í fjarskiptum sem býður upp á fleiri möguleika en það sem TETRA kerfið gerir í dag. Einnig þarf að huga að fjarskiptaöryggi og raforku sem þjónar fjarskiptasendum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Grétar Stefánsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53848
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53848

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Grétar Stefánsson 1987-. Viðbrögð íslenskra viðbragðsaðila við fjarskiptabilunum: Vitund, viðbragðsáætlanir og raunveruleg reynsla. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53848