Back to results

Bifröst University

Landhelgisgæsla Íslands og þjóðaröryggi: Á mörkum löggæslu og varnartengdra verkefna

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um hlutverk Landhelgisgæslu Íslands innan ramma þjóðaröryggis, með áherslu á hvernig stofnunin tengir saman hefðbundin löggæsluverkefni, viðbúnað og varnartengd verkefni. Markmið rannsóknarinnar er að greina lagaumgjörð, valdheimildir og stjórnsýslulega stöðu Landhelgisgæslunnar, auk þess að kanna hvernig samstarf við innlenda og erlenda aðila styður við þjóðaröryggismarkmið Íslands. Jafnframt er gerður samanburður við norsku strandgæsluna, Kystvakten, til að varpa ljósi á mun á stjórnskipan, ábyrgðarkeðjum og verkaskiptingu á mörkum löggæslu og varnartengds stuðnings. Rannsóknin byggir á eigindlegri samanburðarnálgun þar sem íslenska og norska fyrirkomulagið eru greind með sama greiningarramma. Gögnin samanstanda fyrst og fremst af skjalagreiningu á lögum, reglugerðum, stefnumótandi skjölum og opinberum skýrslum, auk tveggja hálfopinna viðtala við lykilviðmælendur innan Landhelgisgæslu Íslands. Þar sem ekki reyndist unnt að taka viðtöl við fulltrúa utanríkisráðuneytisins eða norsku strandgæslunnar byggir norska samanburðareiningin alfarið á opinberum heimildum. Samanburðurinn beinist því fyrst og fremst að lagaumgjörð, ábyrgðarkeðjum og stjórnsýslulegum ferlum fremur en tveimur jafnstórum viðtalssöfnum. Niðurstöður benda til þess að skýrar lagaheimildir, formfest samstarf og rekjanlegt upplýsingaflæði séu lykilforsendur þess að takast á við grá svæði milli löggæslu og varnartengds stuðnings. Norska tilvikið sýnir hvernig skýrari umboð og samhæfing geta styrkt ábyrgð og samstarf. Ritgerðin veitir þannig hagnýta innsýn sem getur nýst við endurskoðun og þróun hlutverks Landhelgisgæslu Íslands í öryggis- og varnarmálum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Viggó Matthías Sigurðsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53810
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53810

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Viggó Matthías Sigurðsson 1976-. Landhelgisgæsla Íslands og þjóðaröryggi: Á mörkum löggæslu og varnartengdra verkefna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53810