Back to results

Bifröst University

,,Það eru allir og amma þeirra að búa til tónlist“ - Áhrif stafrænnar þróunar á listform tónlistar og stöðu tónlistarmanna

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarin ár hefur hröð þróun stafrænnar tækni haft víðtæk áhrif á tónlist og umbreytt því hvernig tónlist er sköpuð og hvernig henni er miðlað. Þessi þróun kallar á sífelldar enduskilgreiningar innan tónlistarheimsins. Í þessu síbreytilega umhverfi verða mörkin milli listar og tækni sífellt óljósari, sem vekur upp mikilvægar spurningar um bæði stöðu tónlistarmanna en einng um listformið sjálft. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig þróun tónlistar frá efnislegu plötuformi yfir í stafrænt streymisumhverfi hefur áhrif á listformið sjálft, sem og á sköpunarferli og hlutverk tónlistarmanna. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem fimm starfandi tónlistarmenn deila reynslu sinni og viðhorfum. Sú nálgun veitir tækifæri til að greina breyttar áherslur og öðlast dýpri skilning á áhrifum þeirrar þróunar sem hér er til skoðunar. Niðurstöður benda til þess að staða hljómplötunnar sem ráðandi listforms tónlistar hafi veikst með tilkomu streymisveitna. Hlustendagegðun hefur í auknum mæli færst yfir í brotakenndahlustun, þar sem áherslan er á stök lög og lagalista frekar en heildstæða upplifun líkt og í formi hljómplata. Samhliða þessari þróun hafa hlutverk tónlistarmanna breyst verulega, þar sem sífellt meiri áhersla er lögð á sýnileika og markaðssetningu á samfélagsmiðlum samhliða listrænni sköpun. Rannsóknin varpar þannig ljósi á þær breytingar og mikilvægi þess að skoða það flókna samband sem ríkir á milli tækni og listar og leggja þannig grunn að frekari rannsóknum á þessu sviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elísa Ýrr Erlendsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53803
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53803

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísa Ýrr Erlendsdóttir 1998-. ,,Það eru allir og amma þeirra að búa til tónlist“ - Áhrif stafrænnar þróunar á listform tónlistar og stöðu tónlistarmanna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53803