Back to results

Bifröst University

,,Grindavík er og verður alltaf heim''. Upplifun og reynsla grindvískra ungmenna af rýmingu og brottflutningi

Abstract

dc:description.abstract

Náttúruhamfarir hafa ítrekað haft áhrif á líf fólks víðsvegar um heiminn og skapa þannig endurteknar áskoranir fyrir samfélög sem búa við slíka hættu. Hamfarir hafa verið tíðar á Íslandi undanfarin ár, ekki síst eftir að eldvirkni hófst á Reykjanesskaga aftur eftir um 800 ára hlé. Þann 10. nóvember árið 2023 lýstu Almannavarnir yfir neyðarstigi í Grindavík og íbúum var skylt að rýma bæinn vegna mikilla jarðskorpuhreyfinga. Rýmingin hafði áhrif á félagslega stöðu og tengslanet grindvískra ungmenna á aldrinum 18-25 ára, þar sem daglegt líf þeirra raskaðist til lengri tíma. Góð félagsleg tengsl, nánd og samheldni skipta ungmennin miklu máli en niðurstöður benda jafnframt til þess að tengslanet þeirra hafi tekið að rofna smám saman. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi félagslegra tengsla og tengslaneta í kjölfar náttúruhamfara auk þeirra afleiðinga sem slíkar hamfarir geta haft í för með sér. Þessi rannsókn byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við sex ungmenni sem öllu áttu það sameiginlegt að hafa upplifað rýminguna í Grindavík þann 10. nóvember árið 2023. Viðtölin voru þemagreind og niðurstöður bornar saman við fyrri rannsóknir og þann fræðilega bakgrunn sem stuðst er við í rannsókninni. Tilgangur rannsóknarinnar er að dýpka skilning á upplifun og reynslu grindvískra ungmenna af rýmingu og brottflutningi, með hliðsjón af hugmyndum James Coleman, Robert Putnam og Pierre Bourdieu um félagsleg tengsl. Niðurstöður rannsóknarinnar samræmast fyrri rannsóknum og sýna fram á að rýming og brottflutningur hafa djúpstæð áhrif á ungmenni, bæði á félagsleg tengsl þeirra og tengslanet. Afleiðingar rýmingarinnar í Grindavík birtust meðal annars í breyttri upplifun ungmenna af öryggi, sjálfsmynd og framtíðarhorfum. Lykilorð: Grindavík, ungmenni, rýming, náttúruhamfarir, félagsleg tengsl

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53797
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53797

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katha Aþena Guðný Þorsteinsdóttir 2002-. ,,Grindavík er og verður alltaf heim''. Upplifun og reynsla grindvískra ungmenna af rýmingu og brottflutningi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53797