Back to results

Bifröst University

Ómarkviss stjórnsýsla tollamála - undanfari breytinga

Abstract

dc:description.abstract

Kveikjan að þessari ritgerð er til komin vegna starfa minna innan tollgæslunnar um langt skeið. Í því ljósi er fróðlegt að skoða stjórnsýslu tollamála árin 1985-1993 og þau mál er sýna ýmsa vankanta á opinberri stjórnsýslu málaflokksins. Ritgerðin er eigindleg og byggð á þeim fjölmörgu gögnum er varða umfjöllunarefnið. Í störfum mínum hefur allt laga- og starfsumhverfi gjörbreyst með nýjum og breyttum áherslum stjórnvalda, nýtt umhverfi inn- og útflutnings, tækninýjunga auk fjölmargra annarra þátta. Verksvið tollgæslunnar er á hverjum tíma fjölþætt og ber ávallt merki þjóðfélagsins á hverjum tíma. Áhugavert er að skoða þá opinberu stjórnsýslu sem iðkuð hefur verið í tollamálum. Í ritgerðinni er fjallað um tímabilið 1985-1993 sem var tími margvíslegra breytinga innan tollframkvæmdar í landinu. Litið var til rannsóknarspurningarinnar ,,Ómarkviss stjórnsýsla tollamála - undanfari breytinga“. Litið er til ágreinings milli ráðherra um tollframkvæmd, þrískipting framkvæmdar sama málefnis milli þriggja ráðuneyta í 26 tollumdæmum landsins er stuðlaði að ómarkvissri stjórnsýslu auk mikils núnings æðstu stjórnenda stofnanna í kjölfar setningu nýrra tollalaga 1987.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðbjörn Ármannsson 1963-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53792
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53792

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðbjörn Ármannsson 1963-. Ómarkviss stjórnsýsla tollamála - undanfari breytinga. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53792