Bifröst University
Þegar hlíðin kom niður: Viðbrögð almannavarna við aurskriðunum á Seyðisfirði í desember 2020.
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að greina viðbrögð almannavarna við aurskriðunum á Seyðisfirði í desember 2020 og meta hvort þau hafi verið í samræmi við viðbragðsáætlanir, auk þess að draga fram lærdóm sem nýta má til framtíðar. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð þar sem beitt er skjalagreiningu á opinberum gögnum, þar á meðal tilkynningum almannavarna, skýrslum og fræðilegum heimildum. Niðurstöður benda til þess að viðbragðskerfi almannavarna hafi í meginatriðum verið virkjað með skipulögðum hætti og í samræmi við skilgreint verklag. Ákvarðanataka, upplýsingagjöf og samhæfing viðbragðsaðila reyndust lykilþættir í að tryggja öryggi íbúa og koma í veg fyrir manntjón. Jafnframt benda niðurstöður til þess að ákveðnir veikleikar hafi verið til staðar, einkum hvað varðar áhættumat og fyrirbyggjandi aðgerðir, þar sem umfang atburðarins kom að einhverju leyti á óvart. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að þróa áfram viðbragðsáætlanir og áhættumat í ljósi breyttra aðstæðna og aukinnar náttúruvár. Hún varpar jafnframt ljósi á mikilvægi skýrrar ákvarðanatöku, virks upplýsingaflæðis og samhæfingar í árangursríkri áfallastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Kristine Pye 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53777
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53777