Back to results

Bifröst University

„Andskotinn, ég tek einn hring í viðbót“ : Prjón, tjáning og sjálfbærni í íslenskri menningu

Abstract

dc:description.abstract

Hvernig upplifir íslenskt prjónafólk prjón sem tjáningarform eða hluta af skapandi sjálfsmynd? Hvernig hefur íslensk prjónamenning þróast með tilliti til sjálfbærni og hægari tísku? Efni þessarar rannsóknar beinist að því hvernig íslenskt prjónafólk tjáir sig í gegnum prjón og hvort það sé hluti af þeirra skapandi sjálfsmynd. Prjón á sér langa sögu í íslenskri menningu og er hefðin enn þann dag í dag lifandi og margir prjóna sér til gamans eða til að öðlast hugarró. Einnig verður leitað svara við því hvort íslenskt prjónafólk veltir fyrir sér sjálfbærninni sem og hægari tísku þar sem prjónafatnaður er vissulega búinn til á hægan máta. Það veitir innsýn í það hvernig þróunin hefur orðið á þó nokkrum árum. Við gerð þessarar rannsóknar var notast við eigindlega gagnagreiningu og voru tekin sex viðtöl við íslenskt prjónafólk, þrjá karlmenn og þrjár konur. Öll höfðu þau áhugaverða sögu að segja varðandi bakgrunn sinn á prjóni og kom það berlega í ljós í niðurstöðunum. Niðurstöðurnar sýndu að prjón getur leitt til þess að það myndist ákveðið tjáningarform hjá prjónafólki og frelsi til að prjóna það sem þau vilja frá sínu höfði frekar en að styðjast við uppskriftir. Uppskriftir geta gefið hugmyndir til að byrja með en svo verður útkoman að einhverju allt öðru undir lokin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Harpa Sigríður Óskarsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52156
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52156

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Harpa Sigríður Óskarsdóttir 1999-. „Andskotinn, ég tek einn hring í viðbót“ : Prjón, tjáning og sjálfbærni í íslenskri menningu. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52156