Bifröst University
Er sviðið mitt? Aðgengi sjálfstætt starfandi tónlistarmanna að tónleikahaldi í Hörpu
Abstract
dc:description.abstractÍ rannsókninni er skoðað hvernig sjálfstætt starfandi tónlistarmenn upplifa aðgengi sitt að tónleikahaldi í Hörpu, hvaða hindrunum þeir mæta og hvort ólík tegund tónlistar hafi þar jafnan aðgang. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifanir og reynslu tónlistarmanna sem og samskipti þeirra við þessa mikilvægu menningarstofnun. Áhersla er lögð á að skoða félagsleg og efnahagsleg áhrif á aðgengi og þátttöku við tónleikahald í Hörpu. Rannsóknin byggist á eigindlegri aðferð með hálfopnum viðtölum við sjö sjálfstætt starfandi tónlistarmenn sem allir hafa fjölbreytta reynslu af tónleikahaldi í húsinu. Kenningar Pierre Bourdieu og Howard S. Becker um menningarframleiðslu veita fræðilegan ramma rannsóknarinnar. Í ljósi þeirra má skilja Hörpu sem vettvang þar sem ólíkar gerðir auðs, valds og samvinnu takast á. Rannsóknin varpar þannig ljósi á hvernig efnahagslegar leikreglur geta mótað raunverulegt aðgengi að menningarstofnunum eins og Hörpu þrátt fyrir yfirlýst jafnrétti. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að formlega njóta allir tónlistarmenn jafns aðgangs að Hörpu, en í framkvæmd er kostnaður við tónleikahald, einkum há salaleiga og ýmiss viðbótarkostnaður, meginhindrunin. Þessi fjárhagslegi þröskuldur veldur því að aðgengi ræðst í raun af efnahagslegri getu fremur en listrænni eða faglegri hæfni, sem getur leitt til óbeinnar mismununar eftir tónlistarstíl og verkefnagerð. Þannig má segja að jafn aðgangur sé til staðar á yfirborðinu, en undirliggjandi efnahagslegar leikreglur leiði til óbeins misréttis. Lykilorð: Tónlistarmenn, Harpa, aðgengi, menningarframleiðsla, kostnaðarhindranir
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birna Klara Björnsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52153
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52153