Bifröst University
Golf og gervigreind: Stuðlar gervigreind að nýsköpun og auknu aðgengi kylfinga að íþróttinni?
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um hvernig gervigreind (e. artificial intelligence) hefur áhrif á nýsköpun og aðgengi innan golfíþróttarinnar. Markmiðið var að kanna hvort og hvernig tæknilausnir geti breytt þjónustu, stjórnun og upplifun kylfinga á Íslandi. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við sérfræðinga úr norrænum tæknifyrirtækjum sem þjónusta Golfsamband Íslands og golfklúbba hér á landi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að gervigreind hafi þegar aukið skilvirkni gagnagreiningar en þrátt fyrir það eru áhrif hennar á aukið aðgengi kylfinga enn á mótunarstigi. Gervigreind gerir mögulegt að sérsníða upplifun, styðja við þjálfun og nýta gögn á markvissari hátt en áður var hægt. Rannsóknin sýnir að gervigreind getur orðið drifkraftur nýsköpunar þar sem þjónusta og tæknilausnir fléttast saman á nýjan hátt. Áskoranir felast einkum í því að tryggja áreiðanleg gögn og siðferðilega ábyrgð við innleiðingu nýrra tæknilausna. Framtíð golfhreyfingarinnar felst í að tengja tækni og íþróttina saman á skapandi hátt þannig að hún nýtist bæði afrekskylfingum og öðrum sem leika golf sér til heilsubótar og ánægju. Auk þess benda niðurstöðurnar til þess að gervigreind geti styrkt samfélagslegt hlutverk með því að gera upplýsingar aðgengilegar og skapa nýjar leiðir til þátttöku. Ef horft er til framtíðar er líklegt að gervigreind verði smám saman stærri þáttur í því að bæta þjónustu og greina þau fjölbreyttu gögn sem verða til á hverjum degi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Eldon Geirsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52134
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52134