Back to results

Bifröst University

,,Ehf, ekkert helvítis frí'' - Hvernig sjálfstætt starfandi listamenn á Íslandi koma sér á framfæri á samfélagsmiðlum

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin snýr að sjálfstætt starfandi listamönnum á Íslandi og hvernig þeir koma sér á framfæri á samfélagsmiðlum. Byggt er á djúpum eigindlegum viðtölum við sjálfstætt starfandi listamenn á Íslandi, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á stöðu þeirra og umhverfi innan listgreina og hvernig þeir nýta samfélagsmiðla til þess að koma sér á framfæri. Niðurstöðurnar sýna fram á fjölbreytta notkun á samfélagsmiðlum, þar sem viðvera, virkni, efnissköpun og áherslur listamannanna eru breytilegar. Viðmælendurnir telja samfélagsmiðla gagnlega í starfi og viðhorf þeirra til samfélagsmiðla er almennt jákvætt. Takmarkanir sem fram komu lúta að vanþekkingu á markaðssetningu, fjárhagsáhyggjum og ótta við að markaðshugsun dragi úr listrænni einlægni. Rannsóknin tekur sérstaklega fyrir íslenskt samhengi og endurspegla niðurstöðurnar bæði jákvæða og neikvæða þætti sem einkenna íslenska markaðinn. Hugmyndafræði persónulegrar vörumerkjasköpunar sýna ávinning slíkrar nálgunar en viðtölin benda jafnframt til tilfinningalegra og félagslegra þátta sem horfa þarf til. Kenning Goffman um sjálfsframsetningu greinir félagslega hegðun listamannanna á samfélagsmiðlum og skoðar framkomu listamannanna í félagslegu samhengi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að samfélagsmiðlar geti reynst mikilvægir í starfi sjálfstætt starfandi listamanna, en gildi þeirra og ávinningur er háð markmiðum og aðstæðum hvers og eins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Assa Ágústsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52131
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52131

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Assa Ágústsdóttir 1996-. ,,Ehf, ekkert helvítis frí'' - Hvernig sjálfstætt starfandi listamenn á Íslandi koma sér á framfæri á samfélagsmiðlum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52131