Bifröst University
,,Ehf, ekkert helvítis frí'' - Hvernig sjálfstætt starfandi listamenn á Íslandi koma sér á framfæri á samfélagsmiðlum
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin snýr að sjálfstætt starfandi listamönnum á Íslandi og hvernig þeir koma sér á framfæri á samfélagsmiðlum. Byggt er á djúpum eigindlegum viðtölum við sjálfstætt starfandi listamenn á Íslandi, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á stöðu þeirra og umhverfi innan listgreina og hvernig þeir nýta samfélagsmiðla til þess að koma sér á framfæri. Niðurstöðurnar sýna fram á fjölbreytta notkun á samfélagsmiðlum, þar sem viðvera, virkni, efnissköpun og áherslur listamannanna eru breytilegar. Viðmælendurnir telja samfélagsmiðla gagnlega í starfi og viðhorf þeirra til samfélagsmiðla er almennt jákvætt. Takmarkanir sem fram komu lúta að vanþekkingu á markaðssetningu, fjárhagsáhyggjum og ótta við að markaðshugsun dragi úr listrænni einlægni. Rannsóknin tekur sérstaklega fyrir íslenskt samhengi og endurspegla niðurstöðurnar bæði jákvæða og neikvæða þætti sem einkenna íslenska markaðinn. Hugmyndafræði persónulegrar vörumerkjasköpunar sýna ávinning slíkrar nálgunar en viðtölin benda jafnframt til tilfinningalegra og félagslegra þátta sem horfa þarf til. Kenning Goffman um sjálfsframsetningu greinir félagslega hegðun listamannanna á samfélagsmiðlum og skoðar framkomu listamannanna í félagslegu samhengi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að samfélagsmiðlar geti reynst mikilvægir í starfi sjálfstætt starfandi listamanna, en gildi þeirra og ávinningur er háð markmiðum og aðstæðum hvers og eins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Assa Ágústsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52131
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52131