Back to results

Bifröst University

Hvernig getur félagsstjórn takmarkað tækifæri ráðandi hluthafa til sjálfsafgreiðsluviðskipta á grundvelli 68. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarverkefnisins felst í því að gera grein fyrir valdheimildum og skyldum félagsstjórnar á grundvelli 68. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Afmarkað við valdbeitingu stjórnar gegn ráðandi hluthöfum til að takmarka sjálfsafgreiðsluviðskipti (e. self-dealing transactions), sem felst í ólögmætri yfirfærslu fjármuna félagsins í hendur ráðandi hluthafa þvert gegn hagsmunum félagsins og annarra hluthafa. Sjálfsafgreiðsluviðskipti eru dulin og matskennd, framkvæmd með óeðlilegum viðskiptum við tengda aðila. Áhersla rannsóknarverkefnisins byggir á því að skilgreina þær valdheimildir sem stjórn geitur beitt gegn misbeitingu valds ráðandi hluthafa til sjálfsagreiðsluviðskipta, bæði innan og utan hluthafafunda. Byggt á skyldu stjórnar að tryggja að starfsemi félagsins sé jafnan í réttu og góðu horfi, sbr. 1. mgr. 68. gr. hfl. Auk skyldunnar til nægilegs eftirlits með bókhaldi félagsins og meðferð fjármuna, sbr. 3. mgr. 68. gr. hfl. Einnig er byggt á öðrum lagareglum sem leggja stoð undir framangreindar skyldur stjórnar. Rannsóknarverkefnið byggir á dogmatískri rannsóknaraðferð á sviði lögfræðinnar. Helstu niðurstöður gefa til kynna að valdheimildir stjórnar samkvæmt 68. gr. hfl. séu matskenndar en kveði þó á um ríkar skyldur. Megin niðurstaðan sýnir fram á mikilvægi þess að stjórn sé óháð í störfum sínum og neiti að framfylgja ákvörðunum um sjálfsafgreiðsluviðskipi til að framfylgja lagaskyldum þeim sem 68. gr. hfl. kveður á um.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Birna Ársælsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52109
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52109

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Birna Ársælsdóttir 1992-. Hvernig getur félagsstjórn takmarkað tækifæri ráðandi hluthafa til sjálfsafgreiðsluviðskipta á grundvelli 68. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52109