Bifröst University
Skapandi kennileiti á Íslandi: Rannsókn á menningarlegu gildi listrænna inngripa í almenningsrýmum
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er leitast við að greina hvernig skapandi inngrip í borgarumhverfi geta haft áhrif á menningarlegt gildi í samfélögum. Til grundvallar liggur hugtakið skapandi kennileiti, sem lýsir umbreytingu hversdagslegra borgarhluta með listrænum hætti þannig að þeir öðlast nýja merkingu og hlutverk í nærumhverfinu. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferð þar sem lögð er áhersla á viðhorf íbúa í Reykjavík og á Akureyri til þessara skapandi kennileita. Fræðilegur rammi ritgerðarinnar byggir að mestu á kenningu Throsby (2000) um menningarlegt gildi, auk tengdra hugtaka á borð við félagsauð (Bourdieu, 1986; Coleman, 1988; Putnam, 2000), staðgerð (Jacobs, 1961; Landry, 2008; Project for Public Spaces, 2012; Whyte, 1980) og staðartengsl (Low & Altman, 1992; Scannell & Gifford, 2010). Gögnum var safnað með rafrænni spurningakönnun og greind með lýsandi tölfræði og þemagreiningu. Sjónum er beint að því hvernig íbúar skynja menningarlegt gildi skapandi kennileita í sínu nærumhverfi. Helstu niðurstöður sýna að skapandi kennileiti hafa jákvæð áhrif á menningarlegt gildi nærumhverfisins, styrkja sjálfsmynd bæjarfélaga og auka meðvitund um menningararf. Þátttakendur töldu þau einnig hafa áhrif á andlega vellíðan og stuðla að samfélagslegri umræðu um list og menningu. Niðurstöðurnar benda einnig til að skortur sé á upplýsingamiðlun um uppruna verkanna. Rannsóknin dregur fram mikilvægi skapandi kennileita sem stefnumótandi verkfæri í menningarlegri þróun. Hún undirstrikar þörfina á aðkomu íbúa, fjölbreytileika í útfærslum, fagmennsku í framkvæmd og markvissri upplýsingagjöf til að hámarka áhrif þeirra á samfélagið. Lykilorð: Skapandi kennileiti, menningarlegt gildi, almenningsrými, félagsleg samheldni, íbúaþátttaka
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagbjört Emilía Hauksdóttir Söebech 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51373
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51373