Bifröst University
Dansað á jaðrinum: Kynbundin jaðarsetning og opinber vanræksla danslistar á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er fjallað um stöðu danslistar á Íslandi með áherslu á hvernig kynjaðar hugmyndir og stofnanabundin mismunun hafa mótað aðstöðu, viðurkenningu og fjármögnun greinarinnar. Þrátt fyrir vaxandi fagmennsku og alþjóðlega viðurkenningu hefur danslist ekki hlotið sambærilegan opinberan stuðning og margar aðrar listgreinar. Rannsóknin leitast við að greina félagslegar og menningarlegar forsendur þessarar stöðu og hvaða áhrif hún hefur á starfsumhverfi og þróun greinarinnar. Fræðilegur rammi ritgerðarinnar byggir á femínískum kenningum og gagnrýninni kynjafræði með áherslu á hvernig kyngervi, vald og stofnanabundin viðmið móta stöðu listforma. Danslist er skoðuð sem líkamlegur og sögulega kvenlægur vettvangur sem hefur orðið eftir í opinberri stefnumótun og menningarlegri viðurkenningu. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði þar sem notast er við eigindleg viðtöl, opinber skjöl, fjárhagsgögn og sögulegan samanburð. Gögnin voru greind með þemagreiningu og margprófun notuð til að auka réttmæti niðurstaðna. Niðurstöður sýna að skortur á aðstöðu, sýnileika, starfsöryggi og faglegri viðurkenningu hefur dregið úr möguleikum danslistar til að þróast. Ritgerðin undirstrikar nauðsyn markviss stuðnings til að treysta stöðu danslistar sem sjálfstæðrar og fullgildrar listgreinar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Pétur Ármannsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51361
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51361