Bifröst University
Hafa fréttatilkynningar til Kauphallarinnar verðmyndandi áhrif á hlutabréfaverð Ölgerðarinnar?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er kannað hvort fréttatilkynningar Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. til Kauphallarinnar hafi marktæk áhrif á verðmyndun hlutabréfaverðs félagsins til skamms tíma. Notast var við aðferðafræði atburðarannsókna (e. event studies) þar sem umframávöxtun í kringum birtingu opinberra frétta voru greindar og bornar saman við kenningu Fama (1970) um skilvirkni markaða (e. efficient market hypothesis). Í greiningunni voru teknir fyrir 43 atburðir og þeir flokkaðir sem jákvæðir, neikvæðir eða hlutlausir. Niðurstöður benda til þess að jákvæðar og neikvæðar fréttir sýni fram á marktæk viðbrögð í kringum birtingu frétta, meðan hlutlausar fréttir hafi almennt ekki áhrif á umframávöxtun. Þetta styður kenningu Fama um meðal sterka skilvirkni markaðarins þar sem opinberar upplýsingar endurspeglast hratt í verði. Takmarkanir rannsóknarinnar felast meðal annars í fáum atburðum, lágu skýringarhlutfalli (R2) milli félags og vísitölu ásamt mögulegri skekkju vegna viðskiptatíðni félagsins á markaði. Ritgerðin veitir ákveðna hugmynd um hegðun fjárfesta á íslenskum hlutabréfamarkaði og viðbrögð þeirra við nýjum upplýsingum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magni Freyr Möller Magnússon 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51118
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51118