Bifröst University
Birtingarmynd fjölmiðla af kvenframbjóðendum í alþingiskosningunum 2024
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar ritsmíðar er að skoða og greina birtingarmynd fjölmiðla af kvenkyns frambjóðendum í aðdraganda alþingiskosninganna á Íslandi árið 2024. Markmið verksins er að greina og meta hvort finna megi ummerki um kynbundið ójafnvægi í fréttaflutningi sjónvarpsfrétta í garð kvenkyns frambjóðenda. Meginþungi rannsóknarinnar byggist á innihaldsgreiningu á kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins (RÚV) og Stöðvar 2 tveimur vikum fyrir alþingiskosningarnar þar sem umfjallanir um stjórnmál og stjórnmálafólk voru skoðaðar. Í ritgerðinni er stuðst við kenningar um speglun fjölmiðla, innrömmun og staðalímyndir í því skyni að greina birtingarmynd kvenframbjóðenda í fjölmiðlum þegar svo stutt var í kosningarnar. Helstu hugtök sem koma fram í ritgerðinni eru stjórnmál, fjölmiðlar, jafnrétti, kynbundið ójafnvægi, frambjóðendur, stjórnmálafólk, stjórnmálamaður, stjórnmá innrömmun, speglun, staðalímyndir, mjúk og hörð málefni. Tilgáta ritgerðarinnar er sú að birtingarmynd kvenkyns frambjóðenda sé minni en starfsbræðra þeirra þegar kom að fjölmiðlum. Niðurstaða greiningarvinnu rannsakara styður þessa tilgátu og leiðir m.a. í ljós að stjórnmálakonur fengu að jafnaði skemmri tíma í orði, birtust síður þegar kom að myndbirtingu og voru almennt minna sýnilegar þegar kom að málefnum sem talin eru hörð. Þótt ekki sé um afgerandi mun að ræða, gefur niðurstaða ritgerðarinnar til kynna ákveðið mynstur sem bendir til að kynbundið ójafnvægi sé til staðar hjá ofangreindum miðlum. Þessi niðurstaða er í samræmi við aðrar rannsóknir um sama efni sem hafa sýnt fram á að fjölmiðlar eiga að einhverju leyti þátt í að viðhalda og ýta undir kynbundið ójafnvægi milli kynjanna í opinberri umræðu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Inga María Warén Árnadóttir 1975-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50999
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50999