Bifröst University
Tilfinningavinna fangavarða: „ég er í þessu því ég elska þetta starf og ég væri ekki í þessu nema bara vegna þess“.
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur: Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á andlega líðan og tilfinningavinnu fangavarða sem starfa í fangelsum á Íslandi. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig starfið hefur áhrif á líðan, faglega sjálfsmynd og viðbrögð við álagi í daglegu starfi. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði og unnin var þemagreining á viðtölum við átta fangaverði með ólíkan starfsaldur og bakgrunn. Viðmælendur lýstu starfi sínu sem tilfinningalega krefjandi og töluðu um að álag birtist ekki síst í formi stöðugrar viðveru, ábyrgðar og ófyrirsjáanleika. Streita og einkenni kulnunar virtust samofin starfinu, jafnvel þótt þau væru ekki alltaf viðurkennd formlega. Þó að margir fundu fyrir ánægju og tilgangi í starfi, kom skýrt fram að formlegur stuðningur við andlega heilsu væri takmarkaður og eftirfylgni ekki næg. Tilfinningavinna reyndist veigamikill hluti starfsins þar sem fagmennska fólst í því að sýna yfirvegun og halda ró í aðstæðum sem geta verið bæði viðkvæmar og streituvaldandi. Niðurstöðurnar sýna að fangaverðir reiða sig að miklu leyti á óformlegan félagastuðning og persónulegar aðferðir til að takast á við álag. Mikilvægt er að móta faglegt umhverfi þar sem tilfinningavinna er viðurkennd sem hluti starfsins og stuðningsúrræði eru aðgengileg og virk áður en álag verður langvarandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Laufey Sif Ingólfsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50777
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50777