Bifröst University
Greining ársreikninga: Samanburður BYKO og Húsasmiðjunnar, hver voru áhrif Covid-19 á rekstur félaganna
Abstract
dc:description.abstractHeimsfaraldur Covid-19 gekk yfir heimsbyggðina árin 2020 til og með 2022 og hafði faraldurinn veruleg áhrif á efnahagslífið með þeim samgöngutakmörkunum sem settar voru. Hvort sem það voru lokanir á landamærum, verslunum eða öðrum fjöldatakmörkunum, þá hafði Covid-19 veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækja og rekstrarumhverfi þeirra. Í þessari rannsókn verður fjallað um BYKO og Húsasmiðjuna, hver eru markmið og reglur reikningsskila, hvernig ársreikningur er uppbyggður og hvernig nota má fjárhagstölur úr ársreikningum til þess að reikna út kennitölur og meta fjárhagsstöðu fyrirtækja. Út frá ársreikningum BYKO og Húsasmiðjunnar árin 2018 til og með 2023 verða kennitölur reiknaðar út, með það að markmiði að svara til um gengi þessara fyrirtækja á Covid-19 tímabilinu. Niðurstöðurnar sýna að Covid-19 hafði jákvæð áhrif á rekstur beggja fyrirtækja. Greiningin leiddi jafnframt í ljós að Húsasmiðjan stóð höllum fæti fyrir faraldurinn, en náði að bæta rekstur sinn verulega yfir tímabilið. BYKO sýndi hins vegar meiri stöðugleika fyrir, á meðan og eftir faraldurinn, og virðist hafa haft sterkari burði til að viðhalda rekstri undir álagi. Má því segja að niðurstöðurnar bendi til þess að BYKO hafi staðið sig betur út frá kennitölum séð, þar sem rekstur þeirra var stöðugri og sveiflur minni yfir Covid-19 tímabilið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sæmunda Fjeldsted Sæmundudóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50670
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50670