Back to results

Bifröst University

Áhrif samfélagsmiðla á kaupákvarðanir neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Niðurstöðurnar úr ritgerðinni sýna fram á mikilvægi samfélagsmiðla sem áhrifavalds í kauphegðun neytenda. Rannsóknin leiddi í ljós að ákveðnar lýðfræðilegar breytur, svo sem aldur og kyn, hafa marktæk áhrif á hvernig neytendur bregðast við markaðsefni á samfélagsmiðlum, sem samræmist fræðilegum umfjöllunum um mikilvægi sundurgreindrar markaðssetningar. Þessar niðurstöður svara rannsóknarspurningunni um hvaða þættir á samfélagsmiðlum hafa áhrif á kauphegðun neytenda með því að undirstrika mikilvægi skilnings á lýðfræðilegum breytum og þörfina fyrir markaðsfólk að beina skilaboðum sínum með tilliti til þessa. Rannsóknin sýndi einnig fram á að traust til auglýsinga á samfélagsmiðlum og áhrifavaldanna sem mæla með vörum er mismikið og upphaflega neikvæð viðbrögð við auglýsingum á samfélagsmiðlum geta oft skýrst af skorti á trúverðugleika þess sem auglýsir og ófullnægjandi upplýsingum um vöruna. Þetta undirstrikar mikilvægi þess fyrir fyrirtæki að byggja upp sterka og áreiðanlega ímynd til að öðlast traust og hollustu viðskiptavina. Áhrif ásýndar og skynjaðra gæða voru líka greinileg í niðurstöðunum, þar sem flestir viðmælendur voru líklegri til að kaupa vörur sem þeir töldu aðlaðandi og af góðum gæðum. Þetta undirstrikar hversu mikilvægt er fyrir vörumerki að fjárfesta í hönnun og gæðum, ekki aðeins í framleiðslu heldur einnig í þeirri mynd sem birtist á samfélagsmiðlum. Samantektin sýnir að samfélagsmiðlar eru öflugt tól í markaðssetningu sem getur haft áhrif á kaupákvarðanir neytenda. Þetta gefur stjórnendum og markaðsfólki dýrmætar upplýsingar og innsýn sem nýtast í ákvarðanatöku og stefnumótun í markaðsstarfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyþór Aron Wöhler 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49235
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49235

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyþór Aron Wöhler 2002-. Áhrif samfélagsmiðla á kaupákvarðanir neytenda. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49235