Back to results

Bifröst University

,,Get ég fengið að máta þetta?" Hvað geta verslanir á Íslandi gert til að koma í veg fyrir að vera notaðar sem mátunarklefar eða sýningarsalir fyrir Boozt?

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar Covid-19 heimsfaraldurs breyttist kauphegðun neytenda til muna, en vegna samkomutakmarkana byrjuðu margar verslanir að bjóða upp á netverslanir. Í dag eru enn margir neytendur sem kjósa frekar vefverslanir heldur en hefðbundnar brick and mortar verslanir og hafa fræðimenn borið kennsl á ákveðnar neytendahegðanir í auknum mæli. Annars vegar er það neytendahegðun sem er kölluð showrooming og hinsvegar er það neytendahegðunin webrooming. Með tilkomu þessara breyttu neytendahegðana hafa verslanir þurft að bregðast við til að vera samkeppnishæf við stórar erlendar verslanakeðjur líkt og norrænu stórverslunina Boozt. Með tilkomu Boozt á íslenskan markað hefur borið á því að íslendingar heimsæki verslanir til að máta eða skoða vörur, en kaupi svo vörurnar ódýrari hjá Boozt. Meginmarkmið þessa verkefnis var að finna svör við því hvað verslanir á Íslandi geta gert til að koma í veg fyrir að vera notaðar sem mátunarklefar eða sýningarsalir fyrir Boozt. Til að svara rannsóknarspurningunni var gagnaöflun tvíþætt. Annars vegar var notast við megindlega rannsókn þar sem neytendur voru út um áhrifaþætti á vörukaup þeirra, hvort sem það væri á Boozt eða í verslun á Íslandi. Hinsvegar var notast við eigindlega rannsókn í formi viðtala við fulltrúa verslana. Tilgangur viðtalana var að fá innsýn verslana í þessa neytendahegðun, hvort verslanir teldu þetta raunverulegt vandamál og hvernig viðmælendur teldu sig geta nýtt styrkleika og tækifæri verslunarinnar til að ná betri árangri í samkeppni við Boozt. Lykilorð: Brick and mortar verslun, vefverslun, showrooming, webrooming, neytendahegðun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ágústa Íris Helgadóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49216
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49216

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ágústa Íris Helgadóttir 1988-. ,,Get ég fengið að máta þetta?" Hvað geta verslanir á Íslandi gert til að koma í veg fyrir að vera notaðar sem mátunarklefar eða sýningarsalir fyrir Boozt?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49216