Abstract
dc:description.abstractMeginviðfangsefni rannsóknarinnar er nánari afmörkun og þýðing lyfjahugtaksins að íslenskum rétti. Ritgerðin felur í sér frumrannsókn, m.a. með það fyrir augum að leggja grunn að frekari lagalegri greiningu á þeim réttarreglum sem lúta að lyfjum. Rannsóknin byggist á hefðbundinni lagalegri aðferð, þ.e. umfjöllun um þær réttarheimildir sem hér eiga við, einkum settan rétt, og þær ályktanir um gildandi rétt sem hægt er að draga af þeim að teknu tilliti til viðurkenndra lögskýringarsjónarmiða. Að loknum inngangi er stuttlega fjallað um sögu lyfjalöggjafarinnar. Sú umfjöllun hefur það að markmiði að varpa ljósi á mikilvægi þeirrar neytendaverndar sem löggjöfinni er ætlað að skapa. Þá eru færð rök fyrir því að hafa beri þær réttarreglur, sem Evrópudómstóllinn hefur mótað, til hliðsjónar við úrlausn mála sem snúa að túlkun lyfjahugtaksins hér á landi. Leitast er við að greina óskráðar reglur viðvíkjandi lyfjahugtakinu með vísan til dómaframkvæmdar Evrópudómstólsins. Vikið er að þeirri stjórnsýsluframkvæmd sem viðhöfð hefur verið hérlendis þegar vörur eru felldar undir lyfjahugtakið og þeim kröfum sem gerðar eru til málsmeðferðar við úrlausn slíkra mála. Í því samhengi er einnig lagt mat á hvort greina megi ákveðna annmarka á stjórnsýsluframkvæmdinni eins og hún horfir við reglum stjórnsýsluréttarins og þeim málsmeðferðarreglum sem Evrópudómstóllinn hefur mótað. Að lokum er vikið að lyfjahugtakinu á sviði refsiréttar. Gerð er grein fyrir dómi Hæstaréttar þann 11. maí 2017 í máli nr. 309/2016 þar sem einstaklingur var dæmdur fyrir brot á lyfjalöggjöfinni fyrir innflutning á nikótínrafrettuvökva. Leitast er við að bera dóminn saman við mál sem komið hafa til kasta Hæstaréttar Þýskalands, stjórnsýsludómstóls þýska ríkisins, æðsta stjórnsýsludómstóls Svíþjóðar og Evrópudómstólsins. Í því ljósi eru færð að því rök að dómur Hæstaréttar samræmist ekki nægilega vel þeim viðmiðum sem leggja ber til grundvallar við úrlausn refsimála þar sem reynir á lyfjahugtakið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Viðar Helgi Guðjohnsen 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49212
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49212