Back to results

Bifröst University

Nær þjóðaröryggisstefna Íslands utan um þær öryggisógnir sem henni er ætlað? Fræðileg samantekt og greining á endurnýjaðri þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um hvort þjóðaröryggisstefna Íslands nái utan um þær öryggisógnir sem henni er ætlað að takast á við. Greiningin byggir á fræðilegum kenningum á borð við raunhyggju, smáríkjafræði, frjálslyndisstefnuna og öryggisvæðingu. Sjónum er beint að helstu áhersluþáttum þjóðaröryggisstefnu Íslands sem endurspegla bæði hnattrænar og svæðisbundnar öryggisáskoranir. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku Íslands í NATO, varnarsamninginn við Bandaríkin og norræna varnarsamvinnu sem eru lykilstoðir í varnar- og öryggismálum landsins. Þá er einnig skoðað hvaða ógnir hafa verið öryggisvæddar með mannöryggi í huga. Notast var við greiningu opinberra skjala, fræðirita og skýrslna til að meta bæði styrkleika og veikleika stefnunnar. Rannsóknin byggir einnig á samanburðargreiningu á þjóðaröryggisstefnu Íslands og stefnum Norðurlandanna með tilliti til nýlegra öryggisbreytinga á alþjóðavettvangi. Áherslur stefnunnar eru greindar í ljósi nýrra áskorana á borð við fjölþáttaógnir, netárásir, loftslagsvá og breytinga á öryggisumhverfi Evrópu vegna aukinnar spennu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Með gagnrýnni nálgun er kannað hvort stefnan sé nægilega heildstæð og hvort hún uppfylli kröfur samtímans. Rannsóknin leiðir í ljós að stefnan sýnir styrkleika í alþjóðlegri samvinnu en skortir dýpri nálgun á nýjar og flóknar ógnir, einkum í netöryggismálum og viðnámsþoli innviða. Niðurstöðurnar leggja grunn að frekari umræðu um varnar- og öryggismál Íslands í framtíðinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðbergur Kristjánsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49197
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49197

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðbergur Kristjánsson 1985-. Nær þjóðaröryggisstefna Íslands utan um þær öryggisógnir sem henni er ætlað? Fræðileg samantekt og greining á endurnýjaðri þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49197