Back to results

Bifröst University

Í sókn eða vörn? Þróun og horfur í íslenskri bókaútgáfu 2024

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að greina stöðu prentaðra bóka á Íslandi í ljósi breyttra markaðsaðstæðna, tækniframfara og þróunar lestrarvenja. Rannsóknarspurningin sem lögð var til grundvallar er: „Hvaða breytingar eru fyrirsjáanlegar á útgáfu prentaðra bóka á Íslandi á næstu árum og hvernig hyggjast bókaútgefendur bregðast við þeim?“ Notast var við eigindlega aðferðafræði og tekin voru hálf-opin viðtöl við fjóra íslenska bókaútgefendur með yfirgripsmikla reynslu á sviðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir áskoranir, eins og aukna samkeppni frá stafrænum miðlum og offramboð titla á smáum markaði, eru prentaðar bækur enn mikilvægur hluti íslenskrar menningar og sjálfsmyndar. Viðmælendur lýstu því hvernig stuðningur hins opinbera hefur ýtt undir þróun sjálfsútgáfu og fjölbreytni á markaði, en jafnframt skapað offramboð sem dregur úr sölu á hverjum titli. Þeir töldu að jólabókaflóðið gegni áfram lykilhlutverki í að halda prentuðum bókum á lífi, en stafrænar lausnir, eins og rafbækur og hljóðbækur, krefjast aðlögunar útgefenda. Ritgerðin styðst við kenningar um menningariðnað, menningarlegt auðmagn og útbreiðslu nýjunga, auk fræðiskrifa um þróun bókaútgáfu á 21. öld, áhrif stafrænnar tækni og rannsóknir á breyttum lestrarvenjum í samtímanum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Guðmundsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49191
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49191

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Guðmundsdóttir 1987-. Í sókn eða vörn? Þróun og horfur í íslenskri bókaútgáfu 2024. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49191