Back to results

Bifröst University

Smellur eða skellur? Áhrif smellibeitu á traust til íslenskra fréttamiðla

Abstract

dc:description.abstract

Með tilkomu samfélagsmiðla og stafrænnar tækni hefur dreifing frétta gjörbreyst vegna gagnvirkra og persónulegra samskipta en það hefur einnig haft í för með sér áskoranir á borð við smellibeitu. Rannsóknin leitast við að svara spurningunni: Hvernig koma möguleg áhrif smellibeitu á traust almennings til íslenskra fréttamiðla fram og í hvaða mæli? Smellibeita einkennist af tilfinningahlöðnum fyrirsögnum sem auka þátttöku til skemmri tíma en grafa undan trúverðugleika miðlanna til lengri tíma. Rannsóknin byggir á kenningum um dagskrárvald, innrömmun og notagildi með áherslu á siðferðilegar áskoranir sem fréttamiðlar standa frammi fyrir. Með blandaðri aðferðafræði sem samanstendur af innihaldsgreiningu á fyrirsögnum og spurningakönnun meðal almennings greinir rannsakandi hvort notkun smellibeitu hafi áhrif á traust til helstu íslensku miðlanna: RÚV, DV, Vísis, Heimildarinnar og MBL. Niðurstöðurnar sýna að smellibeitufyrirsagnir grafa undan trausti almennings og stefna trúverðugleika miðlanna í hættu, þrátt fyrir að þátttaka aukist. Þetta undirstrikar mikilvægi siðferðilegra viðmiða til að samræma fjárhagslega hagsmuni og ábyrgð fréttamiðla. Niðurstöðurnar veita mikilvægar hagnýtar upplýsingar fyrir íslenska fréttamiðla og stefnumótendur og bjóða upp á leiðarvísi til að viðhalda trausti í stafrænu umhverfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásdís Inga Haraldsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49190
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49190

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásdís Inga Haraldsdóttir 1992-. Smellur eða skellur? Áhrif smellibeitu á traust til íslenskra fréttamiðla. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49190