Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hafa samfélagsmiðlar stækkað og orðið stærri partur af okkar daglega lífi. Með auknum umsvifum samfélagsmiðla hafa auglýsingar á þessum miðlum bæst í auglýsingaflóruna en hvaða áhrif hafa þær á neytendur? Markmið rannsóknarinnar var að greina hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á neytendur þegar kemur að auglýsingum á samfélagsmiðlum. Sjónum er beint að því hvort að auglýsingar hafi jákvæð áhrif, hafa auglýsingar áhrif á kauphegðun neytenda og viðhorf? Rannsóknarspurningin er því „Hafa auglýsingar á samfélagsmiðlum áhrif á neytendur á Íslandi?“ Sem fyrr segir þá er þessi rannsókn gerð til þess að kanna hvort auglýsingar á samfélagsmiðlum hafi áhrif á neytendur, hvort að neytendur taki eftir auglýsingum á þeirra miðlum og á hvaða miðlum taka þeir helst eftir auglýsingum. Síðustu ár hefur það aukist mjög að fyrirtæki noti samfélagsmiðla til þess að auglýsa þá vöru eða þjónustu sem þau bjóða upp á, en er það í raun og veru að skila sér til neytenda? Gagnaöflun í þessari rannsókn fór fram með megindlegri spuringakönnun sem var send út á neytendur. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að auglýsingar á samfélagsmiðlum hafi áhrif á neytendur, hvort sem um er að ræða kauphegðun, viðhorf til fyrirtækis eða áhrifavalda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Embla Líf Hallsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49166
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49166