Bifröst University
Staða kvenna og kynsegin einstaklinga í tónlistariðnaði á Íslandi frá árunum 2010-2024: Áskoranir og tækifæri
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi er 14 ECTS-eininga lokaverkfni til BA- gráðu í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Tilgangur og markmið rannsóknarinnar er að kanna stöðu kvenna og kynsegin einstaklinga í íslenskum tónlistariðnaði með það að leiðarljósi að bera kennsl á mögulegar breytingar sem orðið hafa undanfarin rúman áratug í ljósi þeirrar auknu vitundarvakningar sem hefur átt sér stað í tónlistariðnaðinum og samfélaginu í heild sinni. Auk þess var leitast við að greina helstu áskoranir og tækifæri jafnréttisbaráttu innan tónlistariðnaðarins hér á landi. Rannsóknin byggir meðal annars á eigindlegum viðtölum, fyrri rannsóknum, kenningum úr kynjafræði og tölulegum gögnum. Meðal hugtaka sem fjallað er um eru: kynjakerfið, menningarlegt auðmagn, kvennarými, staðalímyndir og orðræða. Rannsóknin varpar fyrst og fremst ljósi á það hve fjölþættur og marglaga vandinn er og hefur verið. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess, þrátt fyrir að mikilvæg framfaraskref hafi verið tekin í átt að jafnrétti í tónlistariðnaðinum og að þátttaka kvenna og kynsegin einstaklinga hafi aukist, sé kynjahalli viðvarandi og karllæg orðræða og -tengslanet og staðalímyndir hindri enn jöfn tækifæri innan iðnaðarins. Þá virðist grasrótar- og jaðarsenan skrefinu á undan meginstraumssenunni hvað varðar jafnrétti og inngildingu. Til þess að ná fram raunverulegum breytingum er nauðsynlegt að greina vandann frekar út frá nútímaviðmiðum, enda hefur samfélagið tekið hröðum breytingum undanfarin áratug og spila samfélagsmiðlar þar lykilhlutverk. Beita þarf kerfisbundnum aðgerðum, til að mynda aukinnar kynjafræði á yngri menntastigum og auka og styðja við valdeflandi rými og verkefni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðný Gígja Skjaldardóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49162
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49162