Bifröst University
Andlegur stuðningur fyrir flugmenn í gegnum Pilot Support Program
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Verkefnið fjallar um viðhorf íslenskra flugmanna til Pilot Support Program (PSP), stuðningskerfis sem hefur það hlutverk að veita jafningjastuðning og stuðla að betri andlegri líðan starfsmanna innan fluggeirans. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hver viðhorf flugmanna eru til PSP, hvort þeir nýti sér þessa aðstoð og ef svo er, hver upplifun þeirra er af henni. Að sama skapi er ætlunin að kanna ástæður fyrir því ef flugmenn hafa ekki nýtt sér úrræðið. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á fyrri rannsóknum á jafningjastuðningi og stuðningskerfum í starfsgreinum þar sem öryggi, líðan og starfsumhverfi starfsmanna hafa afgerandi áhrif á frammistöðu og vellíðan. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferðafræði, þar sem bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknarðferðir eru notaðar til að fá dýpri skilning á upplifun flugmanna af PSP. Spurningakönnun var lögð fyrir flugmenn sex íslenskra flugfélaga. Einnig voru tekin fjögur viðtöl við einstaklinga sem tengjast PSP á ólíkan hátt til að fá innsýn í upplifun þeirra af stuðningskerfinu og áskoranir þess. Niðurstöður beggja rannsókna benda til þess að traust og trúnaður séu lykilatriði fyrir árangur PSP. Einnig að kerfið þurfi að vera sýnilegra og upplýsingagjöf um þjónustuna þurfi að vera öflugri til að stuðla að jákvæðari viðhorfum og aukinni þátttöku flugmanna í PSP. Verkefnið gefur heildaryfirsýn yfir stöðu PSP innan íslenska fluggeirans og varpar einnig ljósi á þau atriði sem tengjast þeim áskorunum sem fylgja innleiðingu PSP í íslenskum flugrekstri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ölver Jónsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48766
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48766