Bifröst University
Þarfagreining fyrir verkefnastjórnunarhandbók og önnur stöðluð skjöl hjá sveitarfélögum landsins
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er leitast eftir upplýsingum um hversu víðfeðm stöðlun skjala fyrir verkefnastjórnun og handbók til stuðnings verkefnastjórum hjá sveitarfélögum á landsbyggðinni er. Verkefnastjórnun er alþjóðleg og hefur þróast ört. Í dag er hún viðurkennd sem mikilvæg atvinnugrein og er hún í framboði á grunn- og framhaldsstigi háskóla á Íslandi. Verkefnastjórnun er með skilgreind hæfniviðmið, fræðilegar grunnstoðir, alþjóðlega staðla og tilvísanir í bestu starfshætti. Mikil aukning er eftir verkefnastjórum, ef marka má atvinnuauglýsingar í dag, og virðist engu skipta í hvaða starfsgrein óskað er eftir starfsfólki. Ritgerðin ber titilinn: Þarfagreining fyrir verkefnastjórnunarhandbók og önnur stöðluð skjöl hjá sveitarfélögum landsins. Til að komast nær því að svara spurningunum: Hver er þörfin fyrir stöðlun skjala fyrir verkefnastjórnun hjá sveitarfélögum á landsbyggðinni?, Hversu algeng er innleiðing handbókar hjá sveitarfélögum landsins? og Hvert er hagnýtt notagildi starfsfólks að slík verkefnastjórnunarhandbók verði innleidd?, voru framkvæmd viðtöl við nokkra einstaklinga sem starfa í stjórnsýslu sveitarfélags og í framhaldi útbúin spurningarkönnun sem var send á öll 64 sveitarfélög landsins. Af fimmtán spurningum voru þrjár opnar til að hver og einn hefði tækifæri til að tjá sína skoðun og afstöðu til fyrri svara. Út frá viðtölunum var framkvæmd einföld þarfa- og SVÓT greining og út frá þeim metin þörfin fyrir stöðluð skjöl og handbók til stuðnings verkefnastjórum. Saga verkefnastjórnunar var höfð til hliðsjónar og rýnt var í lykilhugtök tengt henni. Lykilhugtök: Verkefnastjórnun, verkefni, verkáætlun, tímaáætlun, lífsferill, fjárhagsáætlun, hagsmunaaðilagreining, áhættugreining, SVÓT, sveitarfélög
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birna Guðmundsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/48282
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48282