Bifröst University
Nýtt upphaf í markaðssamskiptum : hver eru hugsanleg áhrif gervigreindar á markaðssamskipti?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að koma auga á hugsanlegar breytingar á því hvernig fyrirtæki hátta sínum markaðssamskiptum með tilkomu gervigreindar. Markaðssamskipti geta tekið á sig hinar ýmsu myndir, auglýsingar, tölvupóstar, úthringingar, almannatengsl og svo framvegis. Megináhersla þessarar rannsóknar er að greina hugsanleg áhrif gervigreindar á auglýsingastarf. Einnig vildi höfundur komast að því hvaða breytingar, ef einhverjar, hafa nú þegar átt sér stað hjá fyrirtækjum þar sem gervigreind á í hlut. Höfundur lagði upp með að fá fram sem flest sjónarmið inn í rannsóknina með því að fá þátttakendur inn sem hafa þekkingu á hinum ýmsu sviðum markaðssamskipta eða þá yfirgripsmikla þekkingu á gervigreind og þróun hennar. Rannsóknin er alfarið byggð á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem rætt við þátttakendur og kappkostað við að fara á dýptina í sérfræðiþekkingu þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hugsanlegar breytingar geti verið nokkrar og snerta á ýmsum þáttum markaðssamskiptanna en helst má nefna markhópagreiningar, markaðsmiðun og skilvirkni í markaðssamskiptum. Höfundur telur að mikil tækifæri liggi á sviðum gervigreindar þegar kemur að markaðssamskiptum fyrirtækja og að það sé mikilvægt fyrir markaðsfólk og fyrirtæki að fylgjast vel með þróun gervigreindar og hvað hún getur gert fyrir fyrirtæki. Séu fyrirtæki ekki meðvituð um áhrif gervigreindar geti það hugsanlega leitt til þess að þau muni sitja eftir í samkeppninni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingólfur Páll Ægisson Norðdahl 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/48281
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48281