Back to results

Bifröst University

Menningarkortlagning : aukin upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn

Abstract

dc:description.abstract

Á hverju ári kemur fjöldi ferðamanna til Íslands í þeim tilgangi að upplifa landið, náttúru þess og menningu. Þeir ferðamenn sem hingað koma hafa allir áhrif á íslenskt efnahagslíf með neyslu sinni. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvort menningarkortlagning geti aukið upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi og hvaða leiðir er hægt að fara. Rannsakandi er starfandi innan skapandi greina hérlendis, með víðtækan áhuga á menningu. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða tækifæri menningarkortlagningar til að auka aðgengi ferðamanna að upplýsingum svo fólk og fyrirtæki sem starfar innan menningargeirans og í ferðaþjónustu geti komið sér á framfæri og bæta upplifun ferðamanna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að menningarkortlagning hafi alla burði til þess að auka upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn. Með því að kortleggja, skrásetja og halda utan um menningarverðmæti landsins er tækifæri til þess að byggja sterkan gagnagrunn sem myndi reynast verðmætur, líka þegar kemur að því að skilgreina íslenska menningu og halda utan um menningarverðmæti landsins. Það er mikið sóknarfæri í því að beita kortlagningu og gera niðurstöður hennar aðgengilegar þeim sem koma hingað til að upplifa menningu landsins. Með niðurstöðum rannsóknarinnar vonast rannsakandi til þess að hún geti orðið að gagni í uppbyggingu á íslenskri menningu innan ferðaþjónustu. Niðurstöður hennar gefa mynd af því hve stór þáttur menning, í sinni víðustu skilgreiningu, er í augum ferðamanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Óskar Jóhannesson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48270
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48270

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Óskar Jóhannesson 1999-. Menningarkortlagning : aukin upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48270