Back to results

Bifröst University

Forysta í nýsköpun : hvernig falla starfshættir og hvatning innan nýsköpunarhraðalsins Snjallræði að hugmyndum þjónandi forystu?

Abstract

dc:description.abstract

Nýsköpun er allt í kringum okkur. Eitt sinn voru ljósaperur, farsímar og bifreiðar allt hugmyndir einhverra aðila sem þorðu að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Nýsköpun er nauðsynleg fyrir mannkynið í þróun sinni og mikilvægur þáttur í því að vinna gegn þeim skaða sem mannkynið hefur unnið á umhverfinu og auðlindum jarðarinnar á undanförnum áratugum. Samvinna er eina leiðin til þess að sporna gegn þeim umhverfis og sjálfbærni áskorunum sem nútímasamfélag stendur frammi fyrir. Til þess þurfum við sterka leiðtoga með skýra framtíðarsýn sem þora að leiða hópinn inn í óvissuna sem blasir við okkur, því stöðnun er ekki lengur valkostur. Leiðtogar á sviði nýsköpunar hafa mikið vald í höndum sér og mikilvægt er fyrir þá að nýta það vel. Í þessari rannsókn var leitast eftir því að skoða hvernig starfshættir og hvatning innan nýsköpunarhraðalsins Snjallræði féllu að hugmyndum þjónandi forystu. Um eigindlega rannsókn er að ræða þar sem fjögur viðtöl voru tekin við frumkvöðla sem tóku þátt í Snjallræði á árunum 2019-2023. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að starfshættir og hvatning innan nýsköpunarhraðalsins Snjallræði féllu vel að hugmyndum þjónandi forystu, þó mismikið eftir því hvaða þáttur var tekinn fyrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sóley Björg Jóhannsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48265
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48265

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sóley Björg Jóhannsdóttir 1999-. Forysta í nýsköpun : hvernig falla starfshættir og hvatning innan nýsköpunarhraðalsins Snjallræði að hugmyndum þjónandi forystu?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48265