Back to results

Bifröst University

Sviðslistir fyrir öll?

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er til B.A.-gráðu og er tilgangur þess að varpa ljósi á þá aðgreiningu sem á sér stað innan sviðslista á Íslandi. Áhersla er lögð á að skoða aðgengi fatlaðra að sviðslistum og inngildingu þess jaðarhóps. Jafnframt að auka þekkingu og skilning á hugtökunum inngilding og ableismi og sýna fram á mikilvægi menningarlegs jafnréttis og fjölbreytni. Þá eru helstu sviðslistastofnanir landsins fengnar til þess að lýsa fyrirhuguðum aðgerðum sínum hvað varðar aukinn fjölbreytileika og inngildingu innan sviðslista. Niðurstöður gefa til kynna að að við séum fremur stutt á veg komin hvað varðar inngildingu innan sviðslista og meginstraumssviðslistir og menntastofnanir á Íslandi eiga enn langt í land að innleiða raunverulega inngildingu. Samtalið er þó sannarlega hafið og meðvitund um einsleitnina og aðgreininguna sem birtist okkur í menningu og listum er til staðar. Auðvelt er að spegla umræðuna um inngildingu við jafnréttisbaráttu kynjanna. Það var erfitt í framkvæmd og þurfti mikinn hita í umræðunni til þess að ná fram árangri í þeim málaflokki. Fyrsta skrefið er að gera grein fyrir augljósri mismunun og aðgreiningu sem á sér stað innan menningarstofnana, setja á fót inngildandi stefnur og aðgerðaráætlanir; búa til verklag og aðgerðarplan til þess að jafna stöðuna og fylgja því eftir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Heiða Sandholt 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46348
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46348

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Heiða Sandholt 1994-. Sviðslistir fyrir öll?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46348