Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er gerð grein fyrir niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar. Sjónum er sérstaklega beint að þeim lykilþáttum sem hafa haft áhrif á uppgang menningar og skapandi greina í Snæfellsbæ, auk þess sem rýnt er í þau tækifæri sem þar leynast til uppbyggingar atvinnu- og menningarlífs. Markmið rannsóknarinnar var að veita innsýn í sjónarhorn samfélagsfrumkvöðla og stjórnenda innan menningargeirans í Snæfellsbæ og greina hvers vegna menning og skapandi greinar blómstra á svæðinu. Miklar breytingar hafa átt sér stað á undanförnum árum í Snæfellsbæ, menningarlífið hefur tekið stakkaskiptum, listamenn hafa laðast að bænum og listaverk má sjá víðsvegar í sveitarfélaginu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að menningarlíf í Snæfellsbæ hafi tekið miklum breytingum með tilkomu Frystiklefans á Rifi sem hefur vissulega haft áhrif á menningarlíf Snæfellsbæjar. Niðurstöður rannsóknar sýna að samspil stuðnings við menningu og listir, jákvætt viðhorf íbúa Snæfellsbæjar og bæjarstjórnar, nálægð við fjölbreytta náttúru og aðlaðandi umhverfi hafa gert það að verkum að menning og skapandi greinar blómstra í Snæfellsbæ. Í sveitarfélaginu eru mörg tækifæri til atvinnu- og menningar uppbyggingar sérstaklega á sviði ferðaþjónustu. Fjölbreytt náttúra, öflugt menningarlíf og mikill sagnaarfur einkenna svæðið. Aukið samstarf innan menningar og lista, sveitarfélagsins og fyrirtækja á svæðinu gæti einnig eflt menningar- og atvinnulíf og ferðaþjónustuna. Einnig má sjá tækifæri í því að útbúa aðstöðu fyrir listafólk, aðstaða til sköpunar gæti aukið aðdráttarafl Snæfellsbæjar. Fornleifar hafa lítið verið rannsakaðar á Snæfellsnesi því gætu tækifæri verið fólgin í því að rannsaka sögu svæðisins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Marsibil Katrín Guðmundsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46343
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46343