Bifröst University
Athafnakonur? Viðhorfskönnun á meðal íslenskra kvenna á aldrinum 15-50 ára
Abstract
dc:description.abstractHöfundur er stjórnarkona í Ungum athafnakonum og hefur mikinn áhuga á viðfangsefni sem valdeflir, hvetur og styrkir aðrar konur. Því þótti áhugavert að framkvæma rannsókn sem gæfi innsýn inn í hugarheim yngri kvenna til að öðlast betri skilning á því sem fylgir athafnakonum og frumkvöðlum en þeim hugtökum er gjarnan stillt upp saman, sem og helstu einkennum þeirra. Framkvæmd var megindleg rannsókn á konum á aldrinum 15-50+ með útgefinni spurningakönnun sem innihélt 15 spurningar byggðar á Likert skala. Alls fengust 203 svör, en könnuninni var deilt inn á samfélagsmiðla höfundar og henni deilt áfram á eigin miðla kvenna, sem myndaði snjóboltaáhrif og varð til þess að stærra og vonandi fjölbreyttara úrtak náðist, til að fyrirbyggja að einungis konur í nánasta hring höfundar svöruðu. Könnunin stóð opin í tvær vikur, frá 8. október til 22. október 2023. Niðurstöður spurningakönnunar sem var send út og var hluti af rannsókninni, sýndi fram á að konur virðist enn í dag líta á hvor aðra sem ákveðna ógn, en tengslanet og samstaða þykir einkar mikilvæg í þeim málum. Þrátt fyrir það virtist einungis minnihluti þeirra kvenna sem svöruðu, vera hluti af formlegu félagi kvenna þar sem áhersla er lögð á þessa þætti. Þetta gefur til kynna mikilvægi þess að gagnkvæmt samtal þurfi að eiga sér stað, ekki einungis bara á milli ungra kvenna heldur í samfélaginu í heild sinni, heldur á milli allra þegna samfélagsins óháð kyni, uppruna, skoðun eða trú. Leitast verður svara við því hvernig megi auka virkni ungra kvenna í íslensku atvinnulífi, sem og skoða hvað einkennir athafnakonur. Ritgerðin er unnin í þágu kvenna, með það að leiðarljósi að valdefla þær, reyna að ýta við þeim og hafa áhrif á framsækni þeirra og hugarfar. Lykilorð: athafnakona, framsækni, frumkvöðull, sjálfsmynd, sjálfstraust, staðalímynd, tengslanet.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kamilla Tryggvadóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46340
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46340