Back to results

Bifröst University

Hvert er viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita gagnvart sérhæfðu stjórnarnámskeiði?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um rannsókn sem var framkvæmd til að kanna áhuga og viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita til námskeiðs sem væri sérhannað með þarfir þeirra í huga. Rannsóknarspurningin sem leitast var við að svara er: Hvert er viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita gagnvart sérhæfðu stjórnarnámskeiði? Í rannsókninni var bæði stuðst við megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir, þar sem spurningakönnun var send á stjórnir björgunarsveita í tölvupósti og henni dreift á samfélagsmiðlinum Facebook ásamt því að viðtöl voru tekin við tvo einstaklinga sem hafa þekkingu og reynslu af viðfangsefninu. Í fræðilegum bakgrunni verkefnisins er meðal annars fjallað um sögu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, stjórnskipulag félagsins og aðildareininga þess. Þá er almenn umfjöllun um sjálfboðastörf, muninn á launuðu starfsfólki og sjálfboðaliðum, hlutverk leiðtoga í sjálfboðastarfi ásamt fleiru. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að viðhorf stjórnarfólks gagnvart sérhæfðu námskeiði sé jákvætt. Svör þátttakenda gefa til kynna víðtæka viðurkenningu á hugsanlegum ávinningi af námskeiðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Bergrós Ýr Ólafsdóttir 1995-
  • Sigrún Flygenring 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46318
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46318

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bergrós Ýr Ólafsdóttir 1995-; Sigrún Flygenring 1989-. Hvert er viðhorf stjórnarmanna björgunarsveita gagnvart sérhæfðu stjórnarnámskeiði?. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46318