Back to results

Bifröst University

Birgðastýring í netverslun

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvaða aðferðir við birgðastjórnun er ákjósanlegasti kosturinn þegar kemur að íslenskum netverslunum. Rannsakandi vildi einnig athuga hvort þær netverslanir sem rætt var við væru að nýta sér sömu eða sambærilegar aðferðir þegar kemur að birgðastjórnun. Leitað var að svörum um helstu áskoranir eða áhættu sem fyrirtækin standa frammi fyrir með rekstur á netverslun og hversu mikilvægt það er að reka netverslun samhliða verslun. Markmið rannsóknar var að geta bent á þær aðferðir sem virka vel og fá innsýn inn í hvernig fyrirtæki beita þeim til að tryggja sem bestan árangur, ásamt því að koma í veg fyrir tap. Fræðilegur bakgrunnur nær yfir birgðir, birgðastjórnun og birgðakerfi, ásamt nokkrum undirköflum. Á eftir þeim koma aðrir kaflar þar sem fjallað verður um netverslun, neytendahegðun og markaðssetningu á netinu. Rannsakandi nýtti sér eigindlega rannsókn þar sem leitast var eftir svörum um aðferðafræði við birgðastjórnun, markaðssetningu á netinu og birgðakerfi. Tekin voru viðtöl við fimm einstaklinga með þekkingu á rannsóknarefninu. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að aðferðafræði við birgðastýringu er mikilvæg, sama á hvaða markaði og á hvaða stærðarskala fyrirtækin eru. Hins vegar sýndu niðurstöður að ákveðin birgðakerfi henta fyrirtækjum út frá stærð þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Harpa Kristinsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46313
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46313

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Harpa Kristinsdóttir 1997-. Birgðastýring í netverslun. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46313