Back to results

Bifröst University

Skynsamleg ákvörðun eða takmörkuð skynsemi? Rannsókn á því hvernig mismunandi hagfræðikenningar myndu byggja eignasafn sitt út frá eignum á borð við verðbréf, gjaldmiðla og rafmyntir

Abstract

dc:description.abstract

Áhugi einstaklinga á fjárfestingum fer vaxandi og oftast fylgir honum von um góða og trygga ávöxtun. Ákveðna grunnþekkingu þarf einstaklingurinn að hafa sem og stefnu fyrir eignasafn sitt. En í ljósi þess hve flókinn heimur fjárfestinga getur verið er oft erfitt að byrja og margir fjárfestingarmöguleikar í boði. Að skoða mögulega eignamyndun út frá hagfræðikenningunum um skynsamlega ákvörðun (e. Rational choice) og takmarkaða skynsemi (e. Bounded rationality) getur hjálpað einstaklingnum að staðsetja sig innan hagfræðinnar og fjárfestinga og þannig fundið sína stefnu. Í þessari rannsókn mun vera kafað djúpt í þessar hagfræðikenningar með tilliti til fjárfestinga og þannig leitast svara við rannsóknarspurningunni: „Hver er samanburðurinn á verðbréfum, gjaldmiðlum og rafmyntum og hvernig passa þessar eignir inn í eignasafn sem annað hvort fylgja hagfræðikenningunum um skynsamlega ákvörðun eða takmarkaða skynsemi?“ Markmið rannsóknarinnar er að vera ákveðið leiðarljós fyrir þann sem vill byggja upp eignasafn sitt í verðbréfum, gjaldmiðlum og rafmyntum. Niðurstöður sýndu fram á að ávöxtun og áhætta væri helsti munurinn á verðbréfum, gjaldmiðlum og rafmyntum. Einnig þar sem rafmyntir heyra ekki undir lög og viðskipti þeirra fara í gegnum bálkakeðjuna fylgir þeim mikil áhætta sem ekki allir fjárfestar eru til í að taka. Með því að setja upp mögulegt eignasafn eftir kenningunum um skynsamlega ákvörðun og takmarkaða skynsemi er hægt að sjá hvar hver eignaflokkur gæti mögulega passað inn fyrir hugsanlega fjárfesta. Þekking er besta vopn fjárfestis og vonar rannsakandi að þessi rannsókn gæti gagnast þeim sem vilja öðlast þekkingu á þessum mismunandi fjárfestingarmöguleikum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aron Halldórsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46308
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46308

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aron Halldórsson 1998-. Skynsamleg ákvörðun eða takmörkuð skynsemi? Rannsókn á því hvernig mismunandi hagfræðikenningar myndu byggja eignasafn sitt út frá eignum á borð við verðbréf, gjaldmiðla og rafmyntir. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46308