Bifröst University
Gervigreind og stafræn markaðssamskipti : „Ég held að við séum bara að sjá toppinn á ísjakanum“
Abstract
dc:description.abstractMeð gífurlegum tækniframförum síðustu áratugi hefur gervigreind orðið mjög sýnileg. Er hún talin stór hluti fjórðu iðnbyltingarinnar og hefur teygt anga sína inn í hin ýmsu svið viðskiptaumhverfisins, þar er markaðsumhverfið engin undantekning. Gervigreindin hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár og er aðgengi að henni töluvert betra en áður. Markaðsumhverfið hefur á sama tíma tekið miklum og örum breytingum og má það meðal annars rekja til tækniframfara. Með notkun gervigreindar hafa fyrirtæki nú möguleika á að nálgast og eiga samskipti við viðskiptavini sína á margbreytilegri hátt. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða ávinning auk takmarkana við notkun gervigreindar við stafræn markaðssamskipti. Var það gert með því að styðjast við eigindlega rannsóknaraðferð, þar sem tekin voru viðtöl við sex sérfræðinga á sviði markaðsmála eða gervigreindar. Tilgátur rannsakenda í upphafi voru að ávinningur snéri fyrst og fremst að því hversu fljót gervigreindin væri að vinna úr gögnum og upplýsingum. Einnig þeim möguleika að hún flýtti töluvert fyrir tímafrekum verkefnum. Tilgátur varðandi takmarkanir voru ekki nógu skýrar í upphafi og gerðu rannsakendur sér ekki fyllilega grein fyrir umfangi gervigreindarinnar. En gerðu þó ráð fyrir því að takmarkanir væru til staðar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að viðmælendur voru einróma um að telja talsverðan ávinning hljótast af notkun gervigreindar í stafrænum markaðssamskiptum sem og markaðsstarfi almennt. Ávinning töldu viðmælendur vera margvíslegan en þá sérstaklega koma fram í tímasparnaði og gagnavinnslu. Takmarkanirnar snúa einna helst að notandanum sjálfum, reynslu hans sem og skilningi á getu gervigreindarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Ása Lilja Rögnvaldsdóttir 1992-
- Rósa María Rúnarsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46306
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46306