Back to results

Bifröst University

Kornforði, fjársjóður Íslands? Rannsókn á hagkvæmni uppbyggingar neyðarkornbirgða fyrir kjarnfóðurframleiðslu

Abstract

dc:description.abstract

Innrás Rússlands í Úkraínu hefur haft umtalsverð neikvæð áhrif á fæðuöryggiá heimsvísu, þar á meðal Íslands. Bæði Þjóðaröryggisráð Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa ráðlagt íslenska ríkinu að koma á fót sex mánaða neyðarbirgðum af helstu matvælum, einkum kornvörum, sem skiptir sköpum bæði fyrir manneldi og fóðurframleiðslu. Rannsókn þessi miðar að því að kanna hagkvæmni mismunandi valkosta ríkisins til þess að tryggja að í landinu séu til sex mánaða birgðir af kornvöru til kjarnfóðurframleiðslu fyrir íslenskan landbúnað. Markmið rannsóknarinnar er að finna hagkvæmasta valkostinn sem íslenska ríkið getur valið til að bæta fæðuöryggi þjóðarinnar í samræmi við tillögur þjóðaröryggisráðsins og Landbúnaðarháskólans. Aðferðarfræði rannsóknarinnar byggir á kostnaðarmati og áhættugreiningu á lykilþáttum mismunandi sviðsmynda með mismikilli aðkomu stjórnvalda. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að hagkvæmasta leið íslenska ríkisins er að gera samning við kjarnfóðurframleiðendur á Íslandi,sem nú þegar eiga kornbirgðir,þar sem íslenska ríkið fjármagnar auka neyðarbirgðir kornvara sem uppfylli tillögu um sex mánaða neyðarbirgðir. Niðurstöður sýna að eignarhald á korni í neyðarbirgðum skuli vera í höndum einkaaðila og íslenska ríkið greiði eðlilega þóknun fyrir rekstur og viðhald neyðarbirgða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45872
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45872

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karl Liljendal Hólmgeirsson 1997-. Kornforði, fjársjóður Íslands? Rannsókn á hagkvæmni uppbyggingar neyðarkornbirgða fyrir kjarnfóðurframleiðslu. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45872