Back to results

Bifröst University

Verkefnastjórnun í byggingaiðnaði

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um uppbyggingu verkefnastjórnunar í byggingainðnaðinum og þær kenningar sem notast er við. Fjallað er um fræðileg hugtök og sagt frá tengingu þeirra við framleiðslu. Tekin eru viðtöl við aðila innan byggingainðnaðarins þar sem viðhorf þeirra og þekking á verkefnastjórnun er skoðuð og farið er yfir hverjar helstu hömlur byggingainðnaðarins eru í nútímasamfélagi og harðnandi samkeppnisumhverfi. Einkenni iðnaðarins eru skoðuð sem og innri og ytri þættir hans. Verkefnastjórnun er skipt upp í sex stig í þessari ritgerð, þar sem hvert stig inniheldur ákveðin hluta þess ferlis sem verkefnið gengur í gegnum, stjórnunarlega séð. Megin markmiðið er að varpa ljósi á hlutverk verkefnastjórnunar og mikilvægi þess í byggingainðnaðinum. Við rannsóknir hefur komið fram að almenn vanþekking er á hugtökum verkefnastjórnunar sem gerir samhæfingu erfiða og skortur er á menntun innan fræðanna. Flestir sem starfa við verkefnastjórnun í dag eru sjálfmenntaðir, sem leiðir til þess að fjöldi mistaka hefur verið gerður til að öðlast þá þekkingu sem menn búa yfir. Með því að innleiða verkefnastjórnun sem hluta af námi í byggingainðnaði væri hægt að stytta til muna lærdómsferlið og draga úr mistökum og endurvinnslu á verktíma. Byggingainðnaðurinn er í kringum tíu prósent af vergri landsframleiðslu hvers lands en er einnig sá iðnaður sem þróast hvað hægast af öllum iðnuðum. Hagnaður byggingafyrirtækja er að meðaltali í kringum 1.5 % af veltu og talið er að sóun geti numið allt að þrjátíu prósentum. Það er því til mikils að vinna fyrir fyrirtæki innan iðnaðarins við innleiðingu úrbóta og bættra starfshátta. Verkefnastjórnun bíður upp á rekstrarleg- og fagleg stjórntæki sem getur auðveldað fyrirtækjum að bæta hag sinn og auka samkeppnishæfni í erfiðu samkeppnisumhverfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Garðar Örn Þorvarðarson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4526
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4526

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Garðar Örn Þorvarðarson 1975-. Verkefnastjórnun í byggingaiðnaði. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4526