Back to results

Bifröst University

Sjálfbærni í fataframleiðslu : hvað geta fyrirtæki gert?

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum hefur sjálfbærni verið mikið í umræðunni og því hafa mörg fyrirtæki tekið breytingum í takt við það, þ.m.t. fataframleiðslufyrirtæki. Nú eru ýmsar leiðir fyrir þessi fyrirtæki til að auka sjálfbærni en þessum breytingum fylgja bæði kostir og gallar. Spurningakönnun var send á íslensk fyrirtæki sem að framleiða sinn eigin fatnað. Þar voru þau spurð hvaða skref fyrirtækið hafi tekið í átt að sjálfbærari framleiðslu og hvaða hindranir og tækifæri felast í því. Einnig var tekið viðtal við stofnenda og eiganda fataframleiðslufyrirtækis sem að hefur sterk gildi hvað varða sjálfbærni. Niðurstöðurnar sýna að mörg fataframleiðslufyrirtæki hafa gert margt til þess að takast á við þessa áskorun. Sá svarmöguleiki sem flestir svöruðu var að leggja áherslu á að offramleiða ekki og á að búa til endingargóðan fatnað. Það voru einnig þó nokkrar hindranir og tækifæri. Algengustu svörin um hindranir voru að það væri hár kostnaður af sjálfbærum efnum og lítil þekking neytenda á sjálfbærum vörum. Helstu tækifærin voru aukin eftirspurn neytenda og tækifæri til þess að koma með nýjar lausnir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bergþóra Karlsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45203
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45203

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bergþóra Karlsdóttir 1999-. Sjálfbærni í fataframleiðslu : hvað geta fyrirtæki gert?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45203