Back to results

Bifröst University

Rafrænar lausnir í bókhaldi

Abstract

dc:description.abstract

Rafrænar lausnir í bókhaldi er nokkuð nýjar af nálinni og fyrir ekki svo löngu var verið að færa bókhald fyrirtækja á pappír. Með innkomu tækninnar hefur þróun bókhalds verið mikil á marga vegu, það eru verkferlar, tengingar við ytri heiminn, starfsstéttin og fleira. Í þessari ritgerð fjallaði rannsakandi um helstu fræði bókhalds en einnig var farið út í fræði breytingastjórnunar þar sem tæknilegar breytingar er stór þáttur í viðfangsefninu. Rannsóknin var framkvæmd til þess að fá nánari sýn á þróun rafrænna lausna í bókhaldi síðustu 30 árin og hvernig framtíðin lítur út. Eigindleg rannsókn var framkvæmd í formi viðtala við sjö viðmælendur, sem eru með margra ára reynslu á sviði bókhalds eða tækni. Niðurstaða rannsóknarinnar var að þróunin hefur leitt til margskonar breytingar á jákvæðan hátt, en margt er sem má bæta. Aukin skilvirkni, tímasparnaður og pappírsleysi er það sem rannsakandi fékk mest að heyra frá viðmælendum við framkvæmd rannsóknarinnar. Það þarf að uppfæra lög um bókhald og við vinnslu rannsóknarinnar komst rannsakandi að því að sú uppfærsla er hafin og það verða líklegast kynnt drög um ný og endurbætt lög um bókhald árið 2024. Bókarastarfsstéttin hefur verið með nokkrar áhyggjur varðandi tækniþróunina og hræðslan byggist á að starfsstéttin muni deyja út. Niðurstöður leiddu í ljós að starfsstéttin mun ekki deyja út, heldur mun starfið þróast í að vera meira eftirlits- og ráðgjafastarf frekar en handavinnu tengt. Lykilorð: Bókhald – Bókhaldskerfi – Tæknilegar breytingar – Bókarar – Pappírslaust – Tækni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Laila Arnarsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45178
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45178

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Laila Arnarsdóttir 1997-. Rafrænar lausnir í bókhaldi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45178