Back to results

Bifröst University

Hvenær verður valdbeiting handhafa lögregluvalds ólögmæt? Hvað einkennir slík tilfelli?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um valdbeitingu handhafa lögregluvalds, hvenær sú valdbeiting verður ólögmæt og hvað einkennir slík tilfelli. Var snert á helstu löggjöf er varðar umfjöllunarefnið og þær þvingunarráðstafanir sem handhafar lögregluvalds hafa heimild til að beita. Framkvæmd var dómarannsókn og voru skoðaðir allir Hæstaréttar og Landsréttardómar sem og allir héraðsdómar sem ekki hafa verið áfrýjaðir og hafa fallið vegna valdbeitingar handhafa lögregluvalds. Alls voru þetta 42 dómar er vörðuðu annars vegar 14. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 sem kveður á um heimild til valdbeitingar og hins vegar 132. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og varða handhafa lögreglunnar en ákvæðið fjallar um brot í starfi. Engum dómum var sleppt til að fá eins nákvæmar niðurstöður og mögulegt var. Meginmarkmið dómarannsóknarinnar var að sjá við hvaða aðstæður valdbeiting þótti ólögmæt og hvort samræmi væri í dómaframkvæmd. Niðurstöður sýndu að töluvert samræmi er í dómaframkvæmd og snerist ólögmæti valdbeitingar helst um að ekki var gætt meðalhófs í framkvæmd þvingunarráðstafana er skerða mikilvæg réttindi manna. Voru það aðstæðurnar frekar er háttsemin sjálf sem höfðu áhrif á hvort lögreglan hafði farið út fyrir valdheimildir sínar og sýndu niðurstöður að lögreglan hefur miklar heimildir til að beita valdi til að ná stjórn á aðstæðum, gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu. Þær þvingunaraðgerðir þar sem lögreglan virtist oftast fara út fyrir valdheimildir sínar var er lögreglan gætti ekki meðalhófs við lengd frelsissviptingar eftir handtöku. Var að lokum gerð tillaga að lagabreytingu hvað það varðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Stefánsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45166
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45166

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Silja Stefánsdóttir 1982-. Hvenær verður valdbeiting handhafa lögregluvalds ólögmæt? Hvað einkennir slík tilfelli?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45166