Bifröst University
Sjálfstætt fólk : greining á fjárhagslegu umhverfi einyrkja innan menningar og skapandi greina
Abstract
dc:description.abstractVið skrif þessarar ritgerðar voru framkvæmdar megindleg og eigindleg rannsókn á meðal sjálfstætt starfandi einstaklinga innan skapandi greina. Við framkvæmd megindlega hluta rannsóknarinnar hlaut undirrituð styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna vorið 2022. Undirrituð fékk ábendingar og aðstoð til að afla gagna frá undirbúningsstjórn Rannsóknaseturs skapandi greina sem og góðar ábendingar varðandi hvernig og hvaðan væri ákjósanlegast að safna gögnum. Niðurstöður þeirrar rannsóknar voru um margt áhugaverðar og varð til þess að ég ákvað fara dýpra í þá rannsókn með eigindlegri rannsókn. Markmið rannsóknarinnar er að greina fjárhagslegt starfs- og rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi innan menningar og skapandi greina sem og opinber réttindi þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á hversu mikilvægt aðgengi að tölfræðilegum gögnum er til að varpa ljósi á virði starfa sjálfstætt starfandi. Þá er ekki síður mikilvægt að rýna heildstætt í starfsumhverfi sjálfstætt starfandi innan skapandi greina, bæði með tilliti til núverandi laga sem og breytinga á störfum og starfsháttum, hvort sem það er vegna stafrænnar þróunar eða vegna nýrra starfa sem verða til í yfirstandandi atvinnuháttabyltingu. Lykilorð: Skapandi greinar, framfærsla, sjálfstætt starfandi, starfsumhverfi, hið opinbera, styrkir.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiða Björk Þórbergsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45144
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45144