Abstract
dc:description.abstractGetur ríkið stjórnað internetinu? Þessi ritgerð reynir að svara því hvort ríkisvaldinu sé yfirhöfuð fært að ná tökum á því hvað fólk gerir og sér á internetinu. Það er þrennt sem veldur helst vandamálum við stjórnun internetsins: Tæknileg uppbygging þess, landfræðileg dreifing notenda internetsins og eðli stafræns efnis. Hönnun internetsins kemur í veg fyrir að því sé miðstýrt en yfirvöld geta samt sem áður sett þrýsting á innlendar netveitur. Með því móti getur ríkið bæði haft áhrif á sýnileika efnis á internetinu og svipt netnotendur nafnleysi sínu. Erfitt er hins vegar fyrir ríkið að hafa reiður á og stjórna netveitum erlendis. Almenningur getur notað þá staðreynd til þess að hylja slóð sína sem og að sjá efni efni sem honum á að vera hulið. Alþjóðlegt eðli internetsins neyðir ríki til þess að vinna saman en það verður ávallt ríkisvald sem ræður á endanum hvað líðst á internetinu og hvað ekki. Farið er yfir heimildir um hönnun internetsins, stuðst við rannsóknir á ríkjum sem takmarka verulega frelsi fólks á internetinu og litið á þær aðferðir sem yfirvöld hér heima hafa notað. Netið er allt um lykjandi miðill sem hefur möguleika á að breyta verulega lifnaðarháttum okkar og því er mikilvægt að átta sig á því hvaða stöðu það hefur gagnvart samfélagslegri uppbyggingu nútímans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldór Berg Harðarson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/4494
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/4494