Back to results

Bifröst University

Markaðsstaða Kjarnafæðis hf : ímynd og staðfærsla

Abstract

dc:description.abstract

Samkeppni á íslenskum kjötvörumarkaði er mikil miðað við stærð markaðarins. Þær upplýsingar sem geta gefið fyrirtæki vísbendingar með hvaða hætti neytendur skynja það og vörumerki þess eru mikilvægar þar sem hægt er að bera saman þá ímynd sem fyrirtækið vill hafa og þá ímynd sem fyrirtækið hefur samkvæmt skynjun neytenda. Ef skynjuð ímynd er ekki sú sem fyrirtækið óskar eftir er hægt að kortleggja hana með ýmsum tækjum markaðsfræðinnar. Staðfærsla er eitt af þeim tækjum sem geta mótað ímynd fyrirtækis og vörumerkis þess. Staðfærsla vörumerkis eða fyrirtækis gengur út á það, að staðsetja vörumerkið í huga neytenda með aðstoð aðgreinandi þátta í þeim tilgangi að reyna að móta ákveðna ímynd þess hjá neytandanum. Meginmarkmið þessa verkefnis er að greina með aðferðum og tækjum markaðsfræðanna hver ímynd og staðfærsla matvælafyrirtækisins Kjarnafæðis hf. er samanborið við þeirra helstu samkeppnisaðila. Framkvæmd var megindleg rannsókn í samvinnu við fyrirtækið með það að markmiði að fá vísbendingar um með hvaða hætti neytendur sjá fyrirtækið og vörumerki þess samanborið við samkeppnisaðila. Kjarnafæði er með breytt vöruúrval kjötvara og var því áhugavert að skoða hvernig staða þeirra er á markaði gagnvart öðrum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Snorri Kristjánsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4493
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4493

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Snorri Kristjánsson 1980-. Markaðsstaða Kjarnafæðis hf : ímynd og staðfærsla. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4493