Back to results

Bifröst University

Skattaréttur : CFC reglur á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar var að kanna hvaða áhrif lög nr. 46/2009 um breytingar á lögum nr. 90/2003 kæmu til með að hafa í íslenskum rétti. Með breytingunum voru innleiddar svokallaðar CFC reglur sem eru m.a. notaðar af nágrannalöndum okkar og var í því skyni litið til framkvæmdar í Noregi og Danmörku. CFC reglurnar taka á skattasniðgöngu í lágskattaríkjum og fela það í sér að einstaklingur sem hefur heimilisfesti í ríki sem hefur tekið upp CFC reglur verði að greiða tekjuskatt af hagnaði til heimaríkisins ef hann á meirihluta eða hefur farið með stjórnunarlegt yfirráð í félagi á lágskattasvæði. Var einnig litið til dómaframkvæmdar og úrskurða Yfirskattanefndar við vinnslu ritgerðarinnar. Niðurstaða ritgerðarinnar felur í sér að sú breyting sem lög nr. 46/2009 hefðu í för með sér kæmu til með að reynast jákvæðar fyrir íslenskan rétt þar sem hann væri orðinn skýrari og að löggjöfin kæmi til með að eyða óvissu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árni Þór Finnsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4475
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4475

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árni Þór Finnsson 1987-. Skattaréttur : CFC reglur á Íslandi. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4475