Abstract
dc:description.abstractAf lögmálinu um eitt verð leiðir að gengisbreytingar hafa töluverð áhrif á verðbólgu. Þetta samband, sem nefnt er gengisleki á verðbólgu, hefur mikla þýðingu á Íslandi þar sem þjóðin er verðbólguhrjáð og með einn minnsta sjálfstæða gjaldmiðil í heimi. Lítið virðist hafa verið ritað um þetta efni hérlendis ef tekið er mið af áhrifum þessa þáttar á verðlag. Fræðigrunnur ritgerðarinnar byggir á kenningum hagfræðinnar um gengi, verðbólgu og lögmálinu um eitt verð en kenningar um gengisleka eru byggðar á því síðastnefnda. Samkvæmt lögmálinu um eitt verð ætti gengisleki að vera algjör, en það er þó ekki raunin. Í ritgerðinni er gerð mæling á áhrifum gengisbreytinga á neysluverð og til mælingarinnar er notað Vector Autoregression líkan með sex töfum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er uppsafnaður gengisleki á verðbólgu næstu tólf mánuði eftir gengisbreytingu um 23% og endanlegur gengisleki þegar áhrifin eru að öllu komin fram um 28%. Gæði líkansins voru metin með tilgátuprófi og tókst með því að hafna þeirri núlltilgátu að gengi hafi ekki áhrif á verðbólgu
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/4473
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/4473