Back to results

Bifröst University

Líknarheimili og heimahlynning á Suðurlandi

Abstract

dc:description.abstract

Viðskiptaáætlunin fjallar um rekstur líknarheimilisins Birtunnar á Suðurlandi sem rekur einnig líknarþjónustu í formi heimahlynningar. Tilgangur verkefnisins er að útbúa skipulag fyrir rekstur líknarheimilis, reikna út hvað það mun kosta af þeirri stærðargráðu sem er hæfileg fyrir Suðurland ásamt því að skoða hversu mikil þörf er fyrir slíka starfsemi. Þjónustan byggir fyrst og fremst á faglegri þekkingu og reynslu í meðferð sjúklinga sem eru með langt genginn ólæknandi sjúkdóm og þarfnast meðferðar á síðustu stigum sjúkdómsins. Sérstæða hugmyndarinnar er sú að þessi þjónusta er ekki í boði á Suðurlandi í dag, þetta er því ný starfsemi sem byggir á því að veita þjónustu við deyjandi einstaklinga nálægt þeirra heimabyggð. Gert er ráð fyrir að Birtan þjóni einstaklingum á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til að byrja með og sinni heimahlynningu í Rangárvallasýslu. Þegar reynsla er komin á reksturinn mun fyrirtækið geta aukið umfang starfseminnar og sinnt öllu umdæminu þ.e. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta lífsgæði sjúklinga og stuðla að vellíðan með því að bjóða m.a. uppá óhefðbundnar meðferðir á erfiðum tímum til viðbótar við hefðbundnar meðferðir. Þörf fyrir líknarþjónustu á Suðurlandi kemur berlega í ljós þegar íbúatölur eru skoðaðar og hún mun koma til með að aukast á næstu árum og áratugum. Fólksfjölgun hefur verið stöðug á Suðurlandi, þjóðin er að eldast og með hækkandi aldri eykst tíðni lífsógnandi sjúkdóma eins og t.d. krabbameins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4465
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4465

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir 1973-. Líknarheimili og heimahlynning á Suðurlandi. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4465