Back to results

Bifröst University

Kyrrsetning fjármuna : um heimildir í íslenskum lögum til að kyrrsetja eignir

Abstract

dc:description.abstract

Kyrrsetning eigna til tryggingar greiðslu skulda er bráðabirgðaraðgerð gerð af sýslumanni og er oftast beitt í einkamálarétti. Kyrrsetning miðar að því að tryggja síðar fullnustu peningakröfu sem enn er ekki hægt að fylgja eftir með fjárnámi. Til staðar er heimild í lögum um meðferð sakamála, til handa lögreglu, til að kyrrsetja eignir til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnaðar og upptöku ávinnings, sem aflað hefur verið með broti. Þá hefur Fjármálaeftirlitið í dag víðtækari heimildir til að leggja á stjórnvaldssektir eða fara fram á upptöku ólöglegs ávinnings en það hafði fyrir nokkrum árum. Á undanförnum árum hefur heimildum til að krefjast kyrrsetningar verið bætt inn í lög sem varða fjármálamarkaði og jafnframt hefur á síðastliðnu ári verið lögð áhersla á að rýmka heimildina og aukna notkun kyrrsetningar almennt við rannsókn mála. Ekki eru allir á eitt sáttir við það hvar skuldi flokka úrræði eins og kyrrsetningu. Ætti að flokka kyrrsetningu sem fullnustugerða, því í raun er hún fremur aðgerðir, sem handhafi ríkisvalds framkvæmir til að tryggja að óbreytt ástand haldist að tilteknu leyti meðan leyst er endanlega úr um viðkomandi réttindi í dómsmáli. Einnig þann hringlandahátt sem hefur verið með staðsetningu kyrrsetningarúrræðis í sakamálalögum og síðast en ekki síst flokkun kyrrsetningarheimilda með auknum rannsóknarheimildum í sérlögum á fjármálamarkaði og sem þvingunarúrræði í nýju lagafrumvarpi til breytingu á skattalögum. Í ritgerðinni er rakið hverjir hafa heimild samkvæmt lögum til að krefjast kyrrsetningar, á hvaða grundvelli þeir geta krafist kyrrsetningar og framkvæmd kyrrsetningar. Umfjöllunin tekur mið af þeim atriðum sem hafa verið talin upp hér að framan og er áhersla lögð á heimildir fjármálaeftirlitsins og lögreglu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Halldórsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4454
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4454

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Halldórsson 1976-. Kyrrsetning fjármuna : um heimildir í íslenskum lögum til að kyrrsetja eignir. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4454